Jón Karl nýr framkvæmdastjóri CP Reykjavík

Jón Karl Ólafsson
Jón Karl Ólafsson

Jón Karl Ólafsson er nýr framkvæmdastjóri CP Reykjavík. CP Reykjavík var stofnað í október á síðasta ári og varð til við sameiningu þjónustu- og ráðgjafafyrirtækjanna Congress Reykjavík og Practical.

Jón Karl hefur áratuga reynslu úr flug- og ferðaþjónustu. Hann var forstjóri Primera Air frá 2008 til 2014. Þá var hann forstjóri Icelandair Group frá 2005 til 2008 og forstjóri Icelandair 2005. Áður var hann framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands frá 1999 til 2004. Jón Karl er með BS í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

CP Reykjavík veitir innlendum og erlendum viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu í tengslum við ráðstefnur, fundi, viðburði, hvataferðir og sérferðir. 

Jón Karl er einn af eigendum CP Reykjavík. Meðeigendur og stofnendur sameinaðra fyrirtækja CP Reykjavík eru Lára B. Pétursdóttir stofnandi Congress Reykjavík, sem tekið hefur við stjórnarformennsku og Marín Magnúsdóttir, stofnandi Practical. Lára stýrir ráðstefnudeild CP Reykjavík og Marín stýrir viðburða- og hvataferðadeild fyrirtækisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK