Björgólfur aftur á meðal þeirra moldríkustu

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir.
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir. mbl.is/Ásdís

Björgólfur Thor Björgólfsson er mættur aftur á lista Forbes yfir ríkustu menn heims eftir fimm ára fjarveru. Hann situr í 1.415. sæti og eru auðæfi hans metin á 1,3 milljarða dollara eða tæpa 173 milljarða íslenskra króna.

Björgólfur er eini íslenski milljarðamæringurinn á listanum og bendir Forbes á að hann hafi tapað stórfé í fjármálahruninu. 

Á toppnum trónir Bill Gates en þeirri stöðu hefur hann haldið í 16 ár af síðastliðnu 21 ári. Auðæfi hans jukust um 3,2 milljarða dollara frá fyrra ári og eru metin á um 79,2 milljarða follara. 

Aldrei fleiri milljarðamæringar

Forbes greinir frá því að metfjöldi milljarðamæringa hafi fundist á þessu ári eða alls 1.826 manns og nema samanlögð auðæfi þeirra um sjö þúsund milljörðum (e. trillion) dollara. Þar af eru 290 nýir á listanum og af þeim kemur 71 frá Kína. Þá virðast ungir vera á uppleið en metfjöldi er undir fertugu á listanum, eða alls 46 manns. Yngstur er Evan Spiegel, stofnandi samskiptaforritsins Snapchat, en hann er 24 ára gamall.

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, færði sig upp um fimm sæti milli ára og situr nú í því sextánda. Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemst inn á topp 20-listann.

Margir féllu af listanum

138 manns sem voru á listanum á síðasta ári féllu af honum, þar á meðal eru hönnuðurinn Michael Kors og Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, auk fjölmargra rússneskra auðkýfinga. 

Björgólfur Thor Björgólfs­sonr og Novator, fjár­fest­inga­fé­lag hans, luku á síðasta ári skuldauppgjöri sínu og nam heildarfjárhæð greiðslna um 1.200 millj­örðum króna. Þar af fengu ís­lensk­ir bank­ar og dótt­ur­fé­lög þeirra greidda rúma 100 millj­arða króna.

Björgólfur gaf þá einnig út bók á síðasta ári þar sem hann fór yfir það hvernig hann varð millj­arðamær­ing­ur, tapaði öllu og byggði upp veldið á nýj­an leik.

Evan Spiegel, forstjóri Snapchat, er yngstur á listanum.
Evan Spiegel, forstjóri Snapchat, er yngstur á listanum. Mynd af Wikipedia
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK