Umdeilda lagið „Blurred lines“ hefur skilað rétthöfum þess um 16,6 milljónum Bandaríkjadala, eða um 2,2 milljörðum íslenskra króna í stefgjöld. Þetta er meðal þess sem komið hefur fram í réttarhöldum vegna lagsins sem nú standa yfir.
Fölskylda söngvarans Marvin Gaye höfðaði málið en hún telur Blurred Lines vera svo svipað laginu „Got to Give It Up“ að fjölskyldan eigi skilið ríflega prósentu af tekjunum.
Af heildarfjárhæðinni fengu Pharrell Willianms og Robin Thicke hvor um sig fimm milljónir dala en rapparinn T.I. fékk 700 þúsund dali. Afganginn fengu plötuútgáfufyrirtækin Interscope Records, Universal Music Group og Star Trak.
Börn Marvins Gaye, þau Nona, Frankie og Marvin III, höfðuðu málið en Nancie Stern, framkvæmdastjóri hjá útgáfufyrirtækinu Quincy Jones, bar vitni í dag og sagði lögin tvö vera verulega lík að mörgu leyti. Hún sagði að höfundar lagsins hefðu að líkum þurft að greiða um 50% teknanna til Gaye ef þeir hefðu fengið leyfi til þess að nota lagið. Þá gætu rétthafar „Blurred Lines“ einnig skuldað Gaye vegna tekna af tónleikahaldi og greiðslna vegna útgáfusamnings, alls 10 milljónir dala.
Annar matsmaður á vegum „Blurred Lines“ hópsins sagði grunnuppbyggingu lagsins þó vera afar algenga og að ekki væri hægt að rekja neinn hljóm eða texta til höfundarréttarvarins efnis.
Stefgjöld geta verið gífurlega verðmætar og trónir „Happy Birthday To You“ eftir Patty Hill og Mildred J. Hill/Warner Chappell, á toppnum þegar litið er til þeirra. Þar á eftir kemur „White Christmas“ með Irving Berlin.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/yyDUC1LUXSU" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div><iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/fp7Q1OAzITM" width="420"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>