Tveggja tölustafa hækkun ekki í boði

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins Eggert Jóhannesson

Í setningarræðu sinni á Iðnþingi í dag sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, kröfugerðir launþegahreyfingarinnar langt umfram það sem íslensk iðnfyrirtæki gætu borið. Íslenskur iðnaður gæti ekki tekið á sig launahækkanir upp á tveggja stafa tölu. Þá þurfi að líta til þess árangurs sem náðst hafi við að halda verðbólgu í skefjum og þess að kaupmáttur, sem Guðrún kallaði hinn raunverulega mælikvarða á stöðu launafólks, hafi vaxið hratt.

Hún ítrekaði þó að mikilvægt væri að iðnrekendur sýni sjónarmiðum launafólks skilning og nefndi í því tilliti húsnæðismál, þar sem aðstæður eru erfiðar og nánast ómögulegt fyrir ungt fólk að koma sér upp eigin heimili hvort sem væri til leigu eða kaupa.

Ný byggingarreglugerð hækki húsnæðisverð um tæplega 10% og það bitni fyrst og fremst á fyrstu kaupendum. Samtök iðnaðarins vilji því að gert verði átak í húsnæðismálum ungs fólks og hleypa þannig lífi í byggingarmarkaðinn sem þarf svo sannarlega á því að halda. Slíkt átak þurfi meðal annars að byggjast á endurskoðun byggingarreglugerðar og lóðaúthlutana þannig að hagkvæmara verði að byggja minni íbúðir.

Hækkanir byggi á framleiðni

Guðrún sagði launahækkanir ekki mega vera innistæðulausar en til að þær hrindi ekki af stað verðbólgu verði þær að byggja á aukinni framleiðni. Því megi ná fram með aukinni fjárfestingu og menntun starfsfólks. Í því samhengi kallaði Guðrún eftir endurbótum á iðnnámi. Benti hún á að íslensk iðnfyrirtæki skapi um helming gjaldeyristekna íslendinga, fjórðung landsframleiðslu og eitt af hverjum fimm störfum á vinnumarkaði en á sama tíma stefni í að fjöldi útskrifaðra í iðn- og tæknigreinum haldi ekki í við aukna þörf greinarinnar eftir fagmenntuðu starfsfólki. Sífellt færri ljúki iðnnámi og á síðasta ári hafi einungis 12% grunnskólabarna valið nám á sviði iðngreina við lok skólaskyldu.

Talaði Guðrún fyrir því að unnið væri að samspili verkvits og bókvits á framhaldsskólastigi. Ræddi hún þá möguleikann að gera nemum kleift að taka grunnnám í iðn samhliða stúdentsprófi þannig að stúdentar gætu útskrifast með tvöfalt próf. „Menntun getur verið fjölbreytileg og þar má ekki ein tegund varpa skugga á aðrar”.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK