Umbúðir Coca-Cola taka breytingum

Carlos Cruz, sem nýverið tók við sem forstjóri Vífilfells.
Carlos Cruz, sem nýverið tók við sem forstjóri Vífilfells.

Vífilfell kynnti í dag breytingar á drykkjum Coca-Cola þar sem öll vörulína Coke hefur verið sameinuð undir einum hatti – þar á meðal eru Coca-Cola, Coke light og Coke Zero.

Í tilkynningu segir að fyrirtækið vilji nýta styrk Coca-Cola vörumerkisins betur og um leið undirstrika þá fjölbreyttu valmöguleika sem standa neytendum til boða undir þessu heimsþekkta vörumerki. Allir drykkirnir munu í framtíðinni heita Coca-Cola en verða í mismunandi lituðum umbúðum og með ólíkri innihaldslýsingu. Ákvörðunin var kynnt samtímis um alla Evrópu en neytendur á Íslandi þurfa að bíða fram í maí til að sjá merki um hana í hillum verslana.

Lítil kók í gleri 100 ára í ár

Coca-Cola hefur verið á borðum Íslendinga í yfir 70 ár en þess er nú jafnframt minnst að 100 ár eru liðin frá því að hin þekkta Coca-Cola flaska var fyrst sett á markað, en hér á landi er hún best þekkt sem „lítil Coke í gleri“. Coca-Cola fyrirtækið hefur reglulega þurft að mæta breyttum þörfum neytenda útfrá bragðskyni, breyttu neyslumynstri og lífstíl. Það hefur fyrirtækið gert með því að bjóða upp á ný vörumerki með mismunandi ásýnd og boðið fólki upp á mismunandi valmöguleika í bragði, kaloríufjölda og koffínmagni. Í fortíðinni hafa þessir nýju drykkir staðið sér en nú munu þeir allir flokkast sem Coke og áherslan í markaðssetningu og auglýsingum verður á eitt vörumerki.

Bragðið breytist ekki

Eftir breytinguna munu þessi mismunandi vörumerki, auk nýrra sem kunna að koma á markað, sem áður segir sameinast undir hatti Coca-Cola vörumerkisins. Ekki verður þó hvikað frá bragðinu sem neytendur þekkja. Þessi nýja nálgun er talin breikka hið heimsþekkta vörumerki þvert yfir vöruframboð fyrirtækisins. Á sama tíma munu umbúðir og auglýsingar undirstrika mismunandi eiginleika hverrar vöru, sem auðveldar neytendum val á vöru við sitt hæfi.

Áberandi innihaldslýsing

„Þetta er gríðarleg framþróun fyrir þetta sterkasta vörumerki okkar og setur val neytenda sem hjartað í stefnumörkun okkar hjá Vífilfelli, líkt og hefur verið gert annars staðar í Evrópu. Hvort sem neytendur velja hið klassíska rauða Coke eða aðra valmöguleika án sykurs, ertu alltaf að drekka Coke, bara það sem hentar þínum þörfum.“ er haft eftir Carlos Cruz sem nýverið tók við sem forstjóri Vífilfells.

Hann bætti ennfremur við að með „nýju stefnumörkun fyrirtækisins munum við setja innihaldslýsingu og upplýsingar um Coke drykki okkar á meira áberandi stað á vörunni sem mun aðstoða fólk að velja vöru eftir eigin smekk. Við teljum þetta vera spennandi þróun bæði fyrir okkur og fyrir viðskiptavini okkar. Rétt er að taka fram að engin breyting verður á bragðinu. Annað væri náttúrulega óskynsamlegt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK