Garðabær skilar 482 milljóna afgangi

Frá Garðabæ.
Frá Garðabæ. mbl.is/Ómar

Garðabær skilaði mun meiri afgangi á árinu 2014 en áætlanir höfðu gert ráð fyrir, eða alls 482 milljónum króna, í stað 159 milljónum króna. Niðurstöðuna má helst rekja til hærri tekna sem skýrist af fjölgun íbúa umfram spár og lægri fjármagnsgjalda vegna lágrar verðbólgu að því er fram kemur í afkomutilkynningu bæjarfélagsins.

Rekstrartekjur ársins námu um 10,7 milljörðum króna og rekstrargjöld með fjármagnsliðum voru 10,2 milljarðar. Niðurstaðan er því jákvæð sem nemur 482 milljónum króna. Álagningarhlutfall útsvars í Garðabæ er 13,7 prósent, sem er með því lægsta sem gerist á landinu.

Stærsti liðurinn í rekstri bæjarins er laun og launatengd gjöld sem námu 5,2 milljörðum króna. Stærsti málaflokkurinn er fræðslu- og uppeldismál en til hans er varið 4,7 milljörðum. Tæplega 1,2 milljarður fór til íþrótta- og æskulýðsmála og 975 milljónir í félagsþjónustu.

Bílastæðahús stærsta framkvæmdin

Framkvæmdir síðasta árs námu samtals 1,5 milljarði króna en áætlun gerði ráð fyrir 1,4 milljarði. Stærstu framkvæmdir ársins voru bygging bílastæðakjallara á Garðatorgi fyrir um 407 milljónir, framkvæmdir við stækkun Hofsstaðaskóla og endurbætur í grunn- og leikskólum bæjarins fyrir tæpar 300 milljónir.

Þá námu framkvæmdir við gatnagerð um 420 milljónum króna.

Veltifjárhlutfall er 0,63 og eiginfjárhlutfall 54%. Skuldahlutfall hefur lækkað, er 93% en var 98% árið 2013. Langtímaskuldir við lánastofnanir og leiguskuldir nema samtals 5,7 milljörðum samanborið við 5,8 milljarða árið 2013. Eignir nema samtals 21,5 milljarði króna árið 2014 og hafa hækkað um 989 milljónir milli ára.

Íbúar Garðabæjar voru 14.450 þann 1. desember 2014 samanborið við 14.137 árið áður sem gerir íbúafjölgun um 2,2%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK