Stjórn VÍS afsalar sér launahækkun

vís vátryggingafélag íslands
vís vátryggingafélag íslands Kristinn Ingvarsson

Stjórnarmenn VÍS hafa tekið ákvörðun um að afsala sér hækkun á stjórnarlaunum sem var samþykkt samhljóða af hluthöfum félagsins á aðalfundi þann 12. mars sl. Eftir þessa ákvörðun allra stjórnarmanna verða stjórnarlaunin 200 þúsund krónur á mánuði til stjórnarmanna og 400 þúsund á mánuði til formanns stjórnar.

Líkt og mbl greindi frá á dögunum var samþykkt á aðal­fundi VÍS að veita al­menn­um stjórn­ar­mönn­um 75 pró­senta launa­hækk­un. Mánaðarlaun þeirra voru hækkuð úr 200 þúsund krón­um í 350 þúsund krón­ur. Laun Guðrún­ar Þor­geirs­dótt­ur, stjórn­ar­for­manns­ins, voru þá hækkuð um 50 pró­sent í 600 þúsund krón­ur á mánuði.

Umtalsverð launalækkun

Í tilkynningu frá VÍS kemur fram að á aðalfundinum hafi fyrirkomulagi stjórnarlaunagreiðslna verið breytt þannig að hætt var að greiða fyrir hvern aukafund til viðbótar fastri mánaðarlegri þóknun samhliða því að fjárhæð fastrar þóknunar var hækkuð.

Var breytingunni ætlað að auka gagnsæi um fyrirkomulag stjórnarlaunanna. Afsal stjórnarmanna á hækkun launanna sem ákveðin var á aðalfundinum mun því leiða til umtalsverðrar lækkunar stjórnarlauna frá fyrra starfsári þar sem gamla fyrirkomulaginu um greiðslur fyrir setna aukafundi hefur verið hætt.

Það er von stjórnar VÍS að afsal hækkunar stjórnarlauna verði þáttur í að stuðla að sátt á vinnumarkaði.

Frétt mbl.is: Stjórn VÍS fékk 75% launahækkun

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK