Undirrituðu samning vegna sólarkísilverksmiðju

Loftmynd af Grundartanga þar sem væntanlegt athafnasvæði Silicor er afmarkað.
Loftmynd af Grundartanga þar sem væntanlegt athafnasvæði Silicor er afmarkað.

Fulltrúar Faxaflóahafna sf. og bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Materials Inc. undirrituðu í dag samninga um lóð, lóðarleigu og afnot af höfn vegna fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga.

Theresa Jester forstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri undirrituðu fyrir hönd Silicor og Faxaflóahafna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, vottuðu undirritunina.

Fjármögnunarsamningar verkefnisins eru á lokastigi. Bandaríska fyrirtækið stefnir að því að hefja framkvæmdir haustið 2015 og framleiðslu á síðari hluta árs 2017.

Áætlað er að um 450 manns starfi á Grundartanga á vegum Silicor.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK