Á stuttum tíma hefur nafni tveggja kráa í Hafnarfirði verið breytt þannig að ruglingi gæti valdið. Enski barinn heitir nú Ölstofa Hafnarfjarðar en Írski barinn heitir hins vegar Ölhúsið - Ölstofa Hafnarfjarðar. Rekstraraðilar staðanna beggja heita þá báðir Ólafur.
„Þetta verður kallað Ölhúsið og Ölstofan. Ég hef engar áhyggjur af þessu,“ segir Ólafur Ágúst Hraundal, rekstrarstjóri Ölstofu Hafnafjarðar, áður Enska barsins. Nýir eigendur tóku við staðnum hinn 1. apríl og verður hann opnaður undir merkjum Ölstofunnar þann 5. maí næstkomandi. Ólafur segir að starfsemin verði með svipuðu móti þótt meiri áhersla verði lögð á helgarnar og reynt verður að færa eins konar sveitaballastemningu þar inn. „Við ætlum að höfða til Hafnfirðingsins þannig að hann þurfi ekki alltaf að hlaupa yfir til Reykjavíkur,“ segir Ólafur.
Ólafur Guðlaugsson tók við Írska barnum á dögunum og var nafninu í kjölfarið breytt yfir í Ölhúsið - Ölstofu Hafnarfjarðar. Ólafur vildi ekki tjá sig um málið en benti hins vegar á að hann væri þegar búinn að skrá bæði lénin olstofa.is og olhusid.is. Þá barst Einkaleyfastofu beiðni um skráningu nafnanna hinn 8. apríl sl. frá Ólafi Guðlaugssyni, en hins vegar barst beiðni um sömu skráningar frá Enska barnum þann 14. apríl sl., eða tæpri viku síðar.
Í samtali við Gaflara sagði Ólafur að hugmyndin væri að bjóða upp á fleiri viðburði og skemmtanir en verið hefur á Írska barnum auk þess sem úrval bjórtegunda verður stóraukið. Þá sagðist hann einnig hafa gert samning við stuðningsmannasveit FH, Mafíuna, og benti á að stórt sumar væri framundan í fótboltanum hjá FH.