Banna auglýsingar DV

Sverr­ir Vil­helms­son

Neytendastofa hefur bannað DV ehf. birtingu fullyrðingarinnar „frítt“ og „í kaupbæti“ í auglýsingum dagblaðsins á áskriftarleið með iPad spjaldtölvu.

Í auglýsingunum var til að mynda að finna eftirfarandi fullyrðingar: „Fáðu áskrift að DV og þú færð FRÍAN iPad með áskriftinni“ og „Fáðu áskrift að DV og þú færð iPad í kaupbæti með áskriftinni“. Áskriftargjald var ekki tekið fram í auglýsingunni. Á vef DV, dv.is, var að finna áskriftarleiðir dagblaðsins, þ.á.m. svonefnda iPad áskrift á 2.998. kr. á mánuði með skuldbindingu í 36 mánuði og Vefáskrift 1 á 895. kr. á mánuði fyrstu þrjá mánuðina og 1.790 á mánuði eftir það. Umræddar áskriftir voru eins að undanskildum iPad að eigin vali.

334,9% dýrara

Í ákvörðun Neytendastofu kemur fram að við ahugun fáist ekki annað séð en að kostnaður vegna iPad spjaldtölvunnar í áskriftarleið DV sé innifalinn í verði áskriftar og því hvorki frí né í kaupbæti þar sem áskriftarleiðin var 334.9% dýrari fyrstu þrjá mánuðina og 167,5% að þeim tíma liðnum miða við áskrift án iPad.

Að mati Neytendastofu brutu viðskiptahættirnir gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu og reglugerð um viðskiptahætti sem teljast undir öllum kringumstæðum óréttmætir.

Var DV ehf. því bannað að viðhafa viðskiptahættina og gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 300.000 kr.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK