Sala Coke í gleri aukist um þriðjung

Sala á Coke í gleri hér á landi jókst um rúm 30% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en Coca-Cola fyrirtækið fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli Coke-glerflöskunnar. Söluaukningin á við um Coca-Cola, Coke Light og Coke Zero í gleri, en sala á síðastnefnda drykknum jókst mest. Aukningin í glerflöskunum er viðbót við sölu á Coca-Cola drykkjum í öðrum umbúðum og samanlagt hefur sala Coke-drykkja því aukist umtalsvert á þessum fyrsta ársfjórðungi, segir í fréttatilkynningu vegna málsins. 

Lítil Coke í gleri kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1915 og fagnar hún því aldarafmæli sínu í ár. Coke kom fyrst til Íslands árið 1942 með bandaríska hernum og segja má að glerflaskan sé samofin sögu 20. aldar á Íslandi. Coke í gleri selst enn í umtalsverðu magni hér á landi, bæði á veitingastöðum og í verslunum. 

 Í tilefni af 100 ára afmælinu voru framleiddar auglýsingar þar sem glerflaskan er látin guma af því að hafa kysst goðsagnir eins og Elvis Presley og Marilyn Monroe. Herferðin er að mestu alþjóðleg en stjórnendur Vífilfells beittu sér fyrir því að þessu yrði breytt og minntu drykkjarvöruframleiðandann á að fáar þjóðir eigi eins sterkt samband við Coke í gleri.

Það varð því úr að Vífilfell fékk leyfi til þess að nota þekkta Íslendinga á borð við Ladda og Eurovisionstjörnuna Maríu Ólafsdóttur í auglýsingum sínum og draga fram tengslin sem Coke í gleri hefur við aðrar vörur hér á landi, m.a. lakkrísrör og Prince Polo.

Gamall draumur Unnar rættist

Á meðal annarra þekktra Íslendinga sem birst hafa í auglýsingunum undanfarið er Unnur Steinsson, fyrrverandi fegurðardrottning. Í viðtali árið 2012 sagði Unnur frá því að þegar hún var ung hafi draumurinn verið að leika í Coca-Cola auglýsingu, sem „voru alltaf svo flottar og glæsilegar“. Sagði hún þá að óskin hefði ekki ræst og má því segja að með 100 ára afmælisherferðinni hafi gamall draumur Unnar orðið að veruleika, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK