Sérfræðifyrirtækjum fjölgar mest

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá apríl 2014 til mars 2015, hefur fjölgað um 8% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.102 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, 58% á síðustu 12 mánuðum, segir á vef Hagstofu Íslands.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá apríl 2014 til mars 2015, hafa dregist saman um 15% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 786 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum flutningar og geymsla hefur fækkað mest, eða um 42% á síðustu 12 mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK