Forstjóri ÍLS hættir samstundis

Sigurður Erlingsson, forstjóri ÍLS.
Sigurður Erlingsson, forstjóri ÍLS. Ernir Eyjólfsson

Sigurður Erlingsson, sem verið hefur gegnt starfi forstjóra Íbúðalánasjóðs frá árinu 2010, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hann mun láta samstundis af störfum en verður þó tímabundnum forstjóra, Gunnhildi Gunnarsdóttur, til ráðgjafar.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Gunnhildur, sem verið hefur staðgengill forstjóra, mun gegna starfinu þar til að nýr forstjóri verður ráðinn.

Starfið verður auglýst laust til umsóknar á næstunni.

Í tilkynningunni segir að nýr forstjóri komi til með að leiða þær breytingar sem kunna að verða á starfsemi sjóðsins við breytta skipan húsnæðismála.

Leitt sjóðin í gegnum erfiða tíma

„Ég tók við rekstri sjóðsins árið 2010 þegar sjóðurinn stóð frammi fyrir miklum áskorunum í kjölfar efnahagshrunsins. Með sterkari innviðum sjóðsins og öflugu stjórnendateymi hefur  sjóðurinn náð góðum tökum á þessum viðfangsefnum. Ég er stoltur af því að meginmarkmið í stefnu- og starfsáætlun Íbúðalánasjóðs hafi náðst,“ er haft eftir Sigurði.

„Sigurður hefur gegnt starfi forstjóra Íbúðalánasjóðs frá því í nóvember 2010. Stjórn Íbúðalánasjóðs þakkar Sigurði fyrir mikilvægt framlag til sjóðsins á umliðnum árum en hann hefur leitt sjóðinn í gegnum erfiðleikatímabil í kjölfar efnahagshrunsins. Afkoma sjóðsins var jákvæð árið 2014 í fyrsta sinn frá árinu 2007, útlánasafn hefur batnað og árangur náðst  í sölu fullnustueigna,“ er þá haft eftir Ingibjörgu Ólöfu Vilhjálmsdóttur, stjórnarformanni Íbúðalánasjóðs.

Ekki náðist í Sigurð við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK