Hlutabréf í Fujitsu lækkuðu mikið

Japan.
Japan. AFP

Hlutabréf í japanska tæknifyrirtækinu Fujitsu lækkuðu um nærri 18% í dag eftir að upplýsingar bárust innan úr fyrirtækinu að hagnaður á þessu ári myndi dragast verulega saman frá fyrra ári.

Í fyrra jókst hagnaður fyrirtækisins um nærri 24%. Hækkun á söluskatti í Japan er talin ein ástæðna minni sölu hjá fyrirtækinu, sem skilar sér í minni hagnaði. Örlítill hagvöxtur var í Japan á síðasta ársfjórðungi síðasta árs, en einkaneysla þar í landi er samt sem áður lítil.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK