Nóbel-námsbúðir hafa vakið lukku hér á landi með námskeiðum sem hjálpa framhalds- og háskólanemum að standast erfiðustu prófin. Að jafnaði fá Nóbel-nemendur einkunn sem er einum heilum hærri en meðaltalið. Stefnan er sett á að vera með milljón skjólstæðinga innan fimm ára.
Davíð Ingi Magnússon situr í framkvæmdastjórn Nóbel en Atli Bjarnason stofnaði fyrirtækið upphaflega. „Það sem við gerum er í grunninn að kanna hvaða námskeið nemendur þurfa aðstoð í og finna nemanda sem stóð sig framúrskarandi vel á sama námskeiði skömmu áður og hefur ákveðna persónulega eiginleika sem frábærir kennarar búa yfir,“ útskýrir Davíð.
„Þegar við höfum fundið þennan framúrskarandi jafningja tökum við hann í kennsluþjálfun þar sem hann lærir að koma þekkingu sinni og innsýn til skila á skemmtilegan, skilvirkan og skýran hátt. Höldum við sérstakan Nóbelskóla með aðkomu fjölda fagaðila frá t.d. Dale Carnegie, Franklin Covey og JCI auk þess sem gæðastýring námskeiða er í höndum Helga Þorsteinssonar, reynslubolta úr röðum Nóbel. Með þetta veganesti er nemandinn tilbúinn að kenna sitt eigið Nóbel-námskeið fyrir jafningja sína.“
Nóbel er í dag með 150 námskeið í boði í 17 framhalds- og háskólum um land allt. Þá er ráðgert að bjóða öllum nemendum í 10. bekk upp á ókeypis Nóbel-námskeið í stærðfræði fyrir lokaprófin, hinn 9. maí næstkomandi, og hafa 80 nemendur nú þegar skráð sig.
Í sama anda eru útgjöld við markaðsmál skorin við nögl. „Við stólum í staðinn á samfélagsmiðla, starfsfólk okkar og gott umtal, og beitum ýmsum ráðum til að fá sem mestan sýnileika.“
Að sögn Davíðs Inga sýna kannanir Nóbel-námsbúða bæði að viðskiptavinirnir eru mjög ánægðir með kennsluna og eins að nemendur frá Nóbel ná betri árangri á prófum en aðrir. „Að meðaltali fá þeir einkunn sem er einum heilum yfir heildarmeðaltalinu úr sama prófi, en þá verður að hafa í huga að þessir nemendur eru líka taldir með í heildarmeðtalinu sem skólarnir reikna, svo raunverulegi munurinn á frammistöðu gæti verið enn meiri.“
Allt verður þetta gert með lágmarkstilkostnaði. „Mjög fjársterkir aðilar hafa haft samband við okkur og sýnt áhuga á að fjárfesta í fyrirtækinu en við höfum afþakkað tilboðin til þessa. Við viljum ekki að áherslan verði á að selja og selja, og dreifi mögulega athyglinni frá því grundvallarmarkmiði að hjálpa nemendum að ná betri árangri.“