Nú er hægt að undirrita rafrænt

Allt sem þarf er að skjalið sé á PDF formi, …
Allt sem þarf er að skjalið sé á PDF formi, að undirritendur séu nettengdir og með rafræn skilríki. Ernir Eyjólfsson

Advania hefur sett á markað nýja lausn á vefnum sem kallast Signet og gerir einstaklingum og fyrirtækjum mögulegt að undirrita skjöl rafrænt hvar og hvenær sem er. Allt sem þarf er að skjalið sé á PDF formi, að undirritendur séu nettengdir og með rafræn skilríki.

Í tilkynningu frá Advania er haft eftir Gesti G. Gestssyni, forstjóra Advania, að lausnin skapi mikinn ávinning fyrir atvinnulífið. „Með rafrænum undirritunum með Signet geta fyrirtæki stigið stór skref í áttina að því að gera öll samskipti og viðskipti rafræn,“ segir hann.

Gestur bendir á að með rafrænum undirritunum verði engin þörf á að hafa samninga eða önnur mikilvæg skjöl á pappírsformi. „Það má búast við að það verði mun auðveldara og hraðvirkara en áður að ganga frá viðskiptum við þjónustufyrirtæki enda hægt að undirrita skjöl heima við ef svo ber undir. Þetta mun spara mörgum sporin í daglegu amstri,“ bætir hann við.

Jafngild hefðbundinni undirritun

Skjöl sem má undirrita með þessum hætti eru til dæmis allir almennir samningar, fundargerðir, lánasamningar, eignaskiptayfirlýsingar og kaupmálar. Signet nýtir rafræn skilríki frá Auðkenni. Undirritanir sem gerðar eru með Signet standast kröfur laga nr 28/2001 til fullgildra rafrænna undirritana og eru því lagalega séð jafngildar hefðbundinni undirritun með penna. Skjöl sem eru undirrituð með Signet eru með langtíma undirritun, sem þýðir að undirritunin inniheldur vottaða tímasetningu og staðfestingu á að rafrænu skilríkin sem beitt var voru gild þegar undirritunin var framkvæmd. Tímasetning undirritunar og hverjir það eru sem undirrita er vottað. Signet virkar ennfremur þannig að notendur geta aðeins séð sín skjöl.

Af þessu tilefni mun Advania halda morgunverðarfund þar sem farið verður ítarlega yfir ávinning atvinnulífsins af rafrænum undirritunum og virkni Signet sýnd.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK