Herbergisnýtingin 87% á höfuðborgarsvæðinu


Nýting hótelherbergja í mars var best á höfuðborgarsvæðinu eða um 87%. Á Suðurnesjum var herbergjanýting um 59%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands um hversu margir gistu á hótelum hér á landi í mars.

Gistinætur á hótelum í mars voru 216.900 sem er 14% aukning miðað við mars 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 86% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 19% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 8% milli ára.

Flestar gistinætur á hótelum í mars voru á höfuðborgarsvæðinu eða 156.700 sem er 8% aukning miðað við mars 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 31.000. Erlendir gestir með flestar gistinætur í mars voru; Bretar 70.600, Bandaríkjamenn með 41.200, og Þjóðverjar með 17.500 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili apríl 2014 til mars 2015 voru gistinætur á hótelum 2.409.700 sem er fjölgun um 14% miðað við sama tímabil ári fyrr.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK