Nýr tvísköttunarsamningur við Georgíu

uðmundur Árnason ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti og Nodar Khaduri …
uðmundur Árnason ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti og Nodar Khaduri fjármálaráðherra Georgíu undirrituðu tvísköttunarsamninginn. Mynd af vefsíðu Fjármálaráðuneytisins

Undirritaður hefur verið samningur milli Íslands og Georgíu til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu. Samningurinn nær til tekjuskatta.

Undirritunin fór fram í Tblisi í Georgíu í dag og undirritaði Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytisins samninginn fyrir hönd Íslands en fjármálaráðherra Georgíu, Nodar Khaduri,  fyrir hönd Georgíu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. 

Helstu efnisatriði samningsins eru þau að samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 25% í félaginu sem greiðir arðinn. Í öðrum tilvikum er 10% afdráttarskattur. Þá var samið um 5% afdráttarskatt af vöxtum og þóknunum.

Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð (credit method) beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun og einnig er að finna ákvæði um aðstoð við innheimtu skatta.

Framundan er vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK