Gætu átt rétt á bótum vegna sykurskatts

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ. mbl.is/Rósa Braga

Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) telja innheimtu á sykurskatti, sem aflagður var um síðustu áramót, hafa falið í sér mismunun á milli innlendra framleiðenda of innflytjendaAð mati SVÞ gætu innflytjendur því eftir atvikum átt bótarétt á hendur íslenskum stjórnvöldum sökum þess tjóns sem þeir kunna af hafa orðið fyrir vegna þessarar mismununar.

Sykurskatturinn var aflagður um síðustu áramót þegar lög um vörugjald voru felld niður. „Eftir standa þó álitamál um hvort þáverandi innheimta sykurskattsins hafi falið í sér mismunum hvað varðar innheimtu þeirra gjalda,“ segir í tilkynningu frá SVÞ.

Telja samtökin að með umræddu fyrirkomulagi hafi aðilum í raun verið mismunað eftir því hvort um var að ræða vöru sem framleidd var hér á landi eða fullunnin í öðru aðildarríki EES-samningsins.

Telja þau fyrirkomulagið fela í sér verulega mismunun varðandi framkvæmd gjaldtökunnar sem væri illsamræmanleg þeirri meginreglu ákvæða EES-samningsins um að gjöld skulu falla jafnt á alla, óháð framleiðslulandi. SVÞ sendu kvörtun á Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í mars 2013 þar sem vakin var athygli á þessu. 

„Nánar tiltekið fólst mismunun í því að innlendum framleiðendum stóð til boða að greiða umrædd vörugjöld eftir á og í samræmi við það magn sem sannarlega var nýtt hverju sinni. Þannig þurfti ekki að greiða fyrir þær vörur sem t.d. döguðu uppi á lager framleiðenda. Hins vegar bar innflytjendum að greiða við innflutning vörugjald á fullunnum vörum og taka um leið á sig öll afföll sem verða á hinni gjaldskyldu vöru.“

Í kjölfar kvörtunar SVÞ leitaði ESA skýringa hjá íslenskum stjórnvöldum varðandi umrædda gjaldtöku og hugsanlegt misræmi varðandi hana. Að mati ESA var umrætt fyrirkomulag til þess fallið að vekja upp áleitnar spurningar um hugsanlega mismunun varðandi innheimtu á sköttum eftir því hvort um var að ræða innlenda framleiðendur eða innfluttar vörur. Undir rekstri málsins hjá ESA voru lög um vörugjald afnumin og var umrædd gjaldtaka þannig felld úr gildi. Í ljósi taldi ESA ekki lengur vera til staðar hætta á mismunun og því má gera ráð fyrir að málinu verði lokið að svo stöddu af hálfu ESA.

SVÞ telja hins vegar að umfjöllun ESA um málið feli í sér viðurkenningu á því að umrædd gjaldtaka hafi falið í sér mismunun eftir því hvort um var að ræða innlenda framleiðslu eða innfluttar vörur sem var ósamrýmanleg ákvæðum 3., 10. og 14. gr. EES-samningsins. „Þessu til viðbótar er það einnig vafa undirorpið hvort og hvernig þessi framkvæmd samrýmist jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins sem og jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK