Þegar Bretar en allt árið 2012

Bretar eru hrifnir af Íslandi.
Bretar eru hrifnir af Íslandi. mbl.is/Árni Sæberg

Nú þegar hafa fleiri breskir ferðamenn komið til landsins en allt árið 2012. Nærri 100 þúsund Bretar komu hingað fyrstu fjóra mánuði ársins sem er nokkru meira en allt árið 2012. 

Túristi greinir frá þessu.

Á þessum tíma voru Bretar ríflega þriðjungur þeirra sem lögðu leið sína um Keflavíkurflugvöll eða 98 þúsund talsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Til samanburðar komu hingað um 44 þúsund bandarískir ferðamenn á fyrsta þriðjungi ársins en þessar tvær þjóðir eru sem fyrr fjölmennastar í hópi erlendra ferðamanna hér á landi.

Bilið á milli þjóðanna tveggja hefur hins vegar breikkað síðustu ár því árið 2012 komu hingað örlítið fleiri Bandaríkjamenn en Bretar. Allt það ár voru breskir ferðamenn á Íslandi 94.599 en eins og áður segir hafa 98 þúsund Bretar komið hingað það sem af er ári.

Miðað við flugáætlanir flugfélaganna sem fljúga héðan til Bretlands þá búast forsvarsmenn þeirra við áframhaldandi aukningu því í framboð á flugi héðan til Lundúna mun aukast töluvert í byrjun næsta árs líkt og Túristi greindi frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK