Vöruskiptin hagstæð um 4,2 milljarða

Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um 4,2 milljarða í lokatölum fyrir árið 2014. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Á árinu 2014 voru fluttar út vörur fyrir 590,5 milljarða króna fob en inn fyrir 586,3 milljarða króna fob, 626,9 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti út- og innflutnings, sem nam 4,2 milljörðum króna en 40,2 milljarða króna afgangur var árið 2013 á gengi hvors árs.

Vöruútflutningur dróst saman um 3,3% frá fyrra ári, á gengi hvors árs, en vöruinnflutningur jókst um 2,8%. Hlutur iðnaðarvöru var 52,5% alls vöruútflutnings og hlutur sjávarafurða var 41,3% en í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur með 27,3% hlutdeild og fjárfestingarvörur með 21,2% hlutdeild.

Stærstu viðskiptalönd voru Holland í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK