Ása Inga Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Íþróttafélagsins Gerplu.
Ása Inga er fædd árið 1982 og hefur verið starfsmanna- og þjónustustjóri Gerplu ásamt því að hafa verið deildarstjóri hjá félaginu til fjölda ára. Þá hefur Ása verið þjálfari hjá félaginu og þjálfaði m.a. Evrópu- og Norðurlandameistara í hópfimleikum.
Ása Inga lauk B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands árið 2007 og útskrifast í júní með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Tæplega 30 manns sóttu um starfið en Capacent mat hæfni umsækjenda og aðstoðaði stjórn Gerplu við ráðningarferlið. Ása tekur við starfinu af Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem gegnt hefur því síðastliðin níu ár.
Í tilkynningu segir að Ása og Auður séu systur, eins og margir Gerplufélagar vita, og óskar stjórn Gerplu Ásu velkomna til starfa um leið og Auði er þakkað fyrir hennar störf.