17 starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Advania. Gestur G. Gestsson forstjóri fyrirtækisins staðfestir þetta í samtali við mbl.is en segir þær aðeins vera hluti af eðlilegum rekstri fyrirtækisins.
„Við erum aðeins að skerpa á PC-sölunni hjá okkur og þessar uppsagnir eru þar. Þetta er bara hluti af eðlilegum rekstri, við erum til að mynda með fleiri starfsmenn hjá okkur núna en við vorum með í upphafi árs,“ segir Gestur.