Engu þinglýst í Reykjavík

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 22. maí til og með 28. maí 2015.

Á sama tíma var 14 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 225 milljónir króna og meðalupphæð á samning 16,1 milljón króna.

Átján kaupsamningum var þinglýst á Akureyri. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 479 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,6 milljónir króna.

Á Árborgarsvæðinu var átta kaupsamningum þinglýst. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 214 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,8 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK