Þorsteinn forstjóri Opinna kerfa

Þorsteinn G. Gunnarsson
Þorsteinn G. Gunnarsson

Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa hf. frá og með 1. júní 2015. Þorsteinn tekur við af Gunnari Guðjónssyni sem gegnt hefur stöðu forstjóra frá árinu 2008 en hann mun nú snúa sér að öðrum verkefnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Opnum kerfum. Þar segir einnig:

Þorsteinn Gunnarsson er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, og með meistarapróf frá University of Washington. Þorsteinn er ekki ókunnugur Opnum kerfum en hann starfaði þar frá 1996 til 2008 sem framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þjónustusviðs og síðast sem forstjóri. Þorsteinn var stjórnarformaður Advania, meðstofnandi og stjórnarmaður í Cooori ehf.  Hann hefur verið virkur í nýsköpunarsamfélaginu, leiddi sameiningu Klaks og Innovit og er stjórnarformaður sameinaðs félags, Klak-Innovit. Þorsteinn er giftur Herdísi Rafnsdóttur og eiga þau saman drengina Rafn Viðar og Gunnar Smára.

Skipulagsbreytingar urðu hjá félaginu í október 2014 þar sem svið voru sameinuð og framkvæmdastjórum fækkað. Í núverandi framkvæmdastjórn félagsins sitja María Ingimundardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs, Guðbrandur R. Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölu- & markaðssviðs, Elín Gränz, framkvæmdastjóri mannauðs- & þjónustusviðs, Friðþjófur Bergmann, framkvæmdastjóri vöruþróunar- & verkefnasviðs, og Kristján Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármála- & innkaupasviðs.   

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK