Hættur eftir nokkurra mánaða starf

Skarphéðinn Berg Steinarsson.
Skarphéðinn Berg Steinarsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Skarphéðinn Berg Steinarsson hætti sem framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Íslands um síðustu mánaðarmót. Í samtali við Túrista segist hann sjálfur hafa óskað eftir því að láta af störfum.

Skarphéðinn Berg tók við sem framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar í byrjun þessa árs eftir að Margrét Helgadóttir sagði starfi sínu lausu. Hún hafði verið yfirmaður fyrirtækisins í tæplega tvö ár.

Þórunn tekin við?

Samkvæmt heimildum Túrista hefur Þórunn Reynisdóttir, fyrrum samstarfskona Skarphéðins hjá Iceland Express, tekið við stjórn Ferðaskrifstofu Íslands en það hefur ekki fengist staðfest. 

Ferðaskrifstofa Íslands er í eigu Pálma Haraldssonar sem jafnframt var aðaleigandi Iceland Express. Ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir heyra undir Ferðaskrifstofu Íslands. Samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins starfa meira en þrjátíu manns á skrifstofum félagsins auk þess er fjöldi fararstjóra á vegum fyrirtækisins í útlöndum.

Skarphéðinn er fyrrum for­stjóri Ice­land Express.

Frétt mbl.is: Skarphéðinn Berg til Ferðaskrifstofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK