Eva Sóley nýr fjármálastjóri Advania

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, nýráðinn fjármálastjóri Advania.
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, nýráðinn fjármálastjóri Advania.

Eva Sóley Guðbjörnsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Advania á Íslandi frá og með 1. júlí.  Eva tekur við starfinu af Stefáni Sigurðssyni sem lét af störfum í síðasta mánuði. Eva hefur frá árinu 2014 gegnt starfi forstöðumanns á fjármálasviði hjá Össuri, en starfaði áður lengst af hjá Kaupþingi m.a. í fjárstýringu, fjármögnun, á fyrirtækjasviði og í fyrirtækjaráðgjöf og síðast í stöðu fjármálastjóra frá árinu 2009 til 2011.

Einnig hefur Eva Sóley verið varaformaður bankaráðs Landsbankans frá árinu 2013. Eva Sóley er með B.Sc. í hagverkfræði og M.Sc. í fjármálaverkfræði frá Columbia Háskólanum í Bandaríkjunum. Hún á farsælan knattspyrnuferil að baki, en Eva Sóley er Bliki og lék með íslenska landsliðinu um árabil. Hún er gift Hilmari Rafni Kristinssyni, og eiga þau tvö börn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK