Norrænir fjárfestar keyptu skuldabréf Arion

Arion banki
Arion banki

Arion banki lauk í dag skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 500 milljónir norskra króna, eða um 8,4 milljarða íslenskra króna, til fimm ára. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum og voru þau seld til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna.

Skuldabréfin bera fljótandi NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi. Arion banki hefur á sama tíma gert skiptasamning sem þýðir að hluti vaxta og höfuðstóls er skipt í evrur. Vaxtakjör í evrum eru fljótandi EURIBOR + 2,74%.

Tíu milljarða afborgun

Samhliða skuldabréfaútgáfunni hefur Arion banki keypt til baka NOK 260 milljónir af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 59 milljónir, og hefur bankinn samtals keypt NOK 319 milljónir tilbaka af NOK 500 milljón króna útgáfu frá árinu 2013.

Arion banki hefur einnig í dag greitt um 10 milljarða króna fyrir gjalddaga af víkjandi láni frá ríkissjóði. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bankinn greiðir fyrirframgreiðslu af víkjandi láni, og hefur samtals greitt um 20 milljarða af um 30 milljarða víkjandi láni.

Lánið var veitt í upphafi árs 2010 í tengslum við endurfjármögnun bankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK