Veiddu fyrir 19,1 milljarð króna

Aflaverðmæti loðnu vó þungt í maí.
Aflaverðmæti loðnu vó þungt í maí. mbl.is/Rax

Verðmæti afla upp úr sjó nam rúmum 19,1 milljarði í mars og hækkaði um 51,7% milli ára. Vegur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam rúmum 4,9 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í mars 2014.

 Hagstofa Íslands greinir frá þessu.

Aflaverðmæti botnfisks nam þá rúmum 13,1 milljarði í mars sem er 22,7% aukning frá fyrra ári. Þorskurinn er sem fyrr verðmætastur botnfisktegunda en aflaverðmæti hans var rúmir 8,7 milljarðar í mars og jókst um tæp 30% samanborið við mars 2014.

Aflaverðmæti íslenskra skipa á tólf mánaða tímabili frá apríl 2014 til mars 2015 nam tæpum 150 milljörðum og jókst um 6,5% miðað við sama tímabil ári áður.

Verðmæti uppsjávarafla jókst um 27,1% milli tímabilanna, og munar þar mest um loðnu og kolmunna. Einnig jókst verðmæti þorsks um 15,2%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK