Vorkoman ein sú versta

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is/Kristinn

Landsvirkjun hefur endurmetið horfur í vatnsbúskap fyrirtækisins að því er segir í fréttatilkynningu. Fram kemur að staðan í miðlunum í lok vetrar hafi verið góð og mikill snjór á Þjórsársvæðinu. Óvenjulega kalt og þurrt vor hafi einkennt þróun í vatnsbúskapnum að undanförnu. Kuldinn í vor hafi valdið því að vorleysing af hálendinu hafi hafist seint og verið hæg framan af. Um sé að ræða eina verstu vorkomu í rekstrarsögu miðlana Landsvirkjunar.

„Framundan er tími leysinga af jöklum og fer eftir magni jökulbráðnunar hversu vel gengur að fylla miðlunarlónin síðar í sumar. Ákoma á jökla var umfram meðallag síðasta vetur og enn er mikill snjór á hálendinu sem gæti haft áhrif til hins betra. Vegna þessara seinkaðra vorleysinga er ólíklegt að öll lón Landsvirkjunar fyllist í sumar. Hálslón sker sig úr og miklar líkur á að það fyllist þrátt fyrir lága stöðu nú. Um fjórðungslíkur eru á að Blöndulón fyllist samkvæmt endurmetnum horfum. Líkur á að lón Þjórsársvæðis fyllist eru litlar.“

Mögulegt sé að Landsvirkjun þurfi að draga úr framboði á raforku á skammtímamarkaði verði staða í lónum undir væntingum í haust. „Þó svo að öll lón fyllist ekki þá getur miðlunarstaða eftir sem áður verið ásættanleg. Hvenær lónin fyllast og fara á yfirfall mun meðal annars ráðast af veðurfari og jökulbráðnun næstu vikna og mánaða og ekki hægt að fullyrða neitt um tímasetningar sem stendur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK