Með því að bæta stæðaúthlutanir flugvéla á Keflavíkurflugvelli má spara bæði fjármagn og einfalda líf farþega.
Nú stendur yfir útboð á útfærslu hugbúnaðar fyrir úthlutun flugvélastæða sem byggir á tillögum meistararitgerðar Hönnu Maríu Hermannsdóttur, verkfræðinema við Háskólann í Reykjavík og starfsmanns Isavia, rekstrarfélags flugvalla á Íslandi.
Í rannsókn sinni sýnir Hanna María að með beitingu nýs reiknilíkans sem hún hannaði væri hægt að ná betri lausn á því vandamáli sem flugvellir eiga við að glíma við að nýta takmarkaðan fjölda stæða betur, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.