Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr Baa3 í Baa2. Hækkunin kemur í kjölfar hækkunar fyrirtækisins á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í fyrradag.
Horfur lánshæfiseinkunnar Landsvirkjunar eru að mati fyrirtækisins enn stöðugar.