Hagnaður Haga á fyrsta ársfjórðungi var 13,6% lægri en á sama tíma í fyrra og nam 811 milljónum króna. Félagið hafði reiknað með að hagnaðurinn yrði 15% lægri en á síðasta ári vegna áhrifa verkfalla og kostnaðarauka vegna kjarasamninga.
Vörusala á tímabilinu nam um 18,6 milljörðum króna og dróst saman um 1,15% milli ára. Samdráttinn má rekja til niðurfellingu vörugjalda að því er fram kemur í tilkynningu. Í kynningu félagsins á síðasta ársuppgjöri kom fram að vörugjöld sem felld voru niður um síðustu áramót hefðu verið um 1,7%-1,8% af veltu félagsins.
Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam um 1,2 milljarði króna, samanborið við 1,4 milljarða króna árið áður. EBITDA framlegð var 6,5%, samanborið við 7,4% árið áður.
Í afkomutilkynningu segir að ljóst sé að áhrif verkfalla og kostnaðarauki vegna kjarasamninga hafi sett mark sitt á rekstrarniðurstöðu fyrsta ársfjórðungs. Bent er á að kostnaðarauki Haga vegna kjarasamninga hafi verið umfram það meðaltal sem Samtök atvinnulífsins settu fram í kostnaðarmati, en það var 7,3% á fyrsta ársfjórðungi.
Skattaspor Haga á síðasta rekstrarári nam 5,2 milljörðum króna en þar af voru gjaldfærðir skattar rúmir 2,8 milljarðar króna og innheimtir skattar um 2,3 milljarðar króna.