„Við skoðuðum margar leiðir í aðdraganda ákvörðunarinnar og það er vilji hjá okkur til þess að ræða við áhugasama aðila. Hins vegar munum við ekki fara yfir einstök mál í ferlinu í fjölmiðlum,“ segir Ásdís Pétursdóttir, sviðsstjóri samskiptasviðs Actavis, aðspurð hvort verið sé að skoða tilboð Róberts Wessman í lyfjaverksmiðju fyrirtækisins.
Ásdís segir að Actavis muni ekki tjá sig frekar um málið. Líkt og fram kom í gær segist Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, tvívegis hafa gert tilboð í verksmiðjuna.
Á mánudaginn tilkynnti Actavis að ákvörðun hefði verið tekin um að færa framleiðslu lyfjaverksmiðjunnar til annarra framleiðslueininga samstæðunnar fyrir mitt ár 2017.
Í samtali við mbl staðfesti Robert Stewart, forstjóri samheitalyfjasviðs og alþjóðaframleiðslu Actavis plc., móðurfélags Actavis á Íslandi, að þetta væri gert í hagræðingarskyni og liður í því að tryggja samkeppnishæfni fyrirtækisins á alþjóðavettvangi. Um 300 manns sem vinna í verksmiðjunni í Hafnafirði missa vinnuna þegar verksmiðjunni verður lokað.
Róbert Wessman sagði í gær að hann hefði fyrst nálgast stjórnendur Actavis fyrir um ári síðan. Fyrsta tilboðið lagði hann fram fyrir tveimur mánuðum en Actavis hafnaði því. Hann ítrekaði síðan tilboðið fyrir nokkrum dögum en Actavis hefur ekki svarað því.
Að sögn Róberts náðust ekki samningar þar sem stjórnendur Actavis vildu ekki láta framleiðslu fyrir íslenskan markað fylgja kaupunum. Í tilkynningu frá Actavis sagði að framleiðslan yrði flutt til annarra framleiðslueininga.
Aðspurð vildi upplýsingafulltrúi Actavis ekki staðfesta að þetta væri ástæðan.