Vöruskiptin óhagstæð um 10,4 milljarða

Vöruskiptin voru óhagstæð um tæpa 10,4 milljarða króna í júní samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2015 var útflutningur fob 56,0 milljarðar króna og innflutningur fob tæpir 66,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,4 milljarða króna.

Athygli skal vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK