Sjóvá kaupir 40 milljónir hluta í Sjóvá

Stjórn Sjóvár-Almennra trygginga hf. hefur tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar með það að markmiði að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu nema að hámarki 40.000.000 hlutum eða sem nemur 2,51% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlun þessi gildir til aðalfundar félagsins 2016 en þó aldrei lengur en til 26. mars 2016.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX á Íslandi hf., hvort sem er hærra. Upphæð hvers tilboðs er 800.000 hlutir og er það jafnframt hámarks magn hluta hvers viðskiptadags.

Viðskipti með eigin hluti tengdum endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Íslandsbanki mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðanir tengdar framkvæmd hennar, kaup og tímasetningu þeirra, óháð félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK