Dularfullar rottustyttur í London

Rotturnar tvær. BI leitar eftir listamanninum.
Rotturnar tvær. BI leitar eftir listamanninum. Skjáskot af vefsíðu Business Insider

Dularfullum ómerktum styttum var komið upp í fjármálahverfi London í morgun, fyrir utan Deutche Bank og á móti HSBC og Lloyds. Engin merking er á „listaverkinu“ sem lítur út fyrir að vera úr pappa og svartri málningu að því er fram kemur á vefsíðu Business Insider.

BI leitar eftir þeim sem hefur einhverjar upplýsingar um verkið og hefur beðið fólk um að senda sér línu.

Önnur fígúran er í jakkafötum og með rottuhaus og hala. Talið er að hún eigi að vera einhvers konar táknmynd bankamannsins sökum klæðnaðarins og staðsetningarinnar. Þá er hún með hendur fyrir aftan bak líkt og hún sé í handjárnum. Hin rottan er einungis í peysu og lítur út fyrir að vera eitthvað niðurdregin.

Fleiri myndir má sjá á vefsíðu Business Insider.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK