Eyrir selur hlut sinn í Fokker

Fokker er sérhæfður undirverktaki á sviði flugvélaframleiðslu.
Fokker er sérhæfður undirverktaki á sviði flugvélaframleiðslu. Af vef Fokker

Eyrir Invest, Arle og meðfjárfestar hafa gengið frá samkomulagi um sölu á Fokker Technologies til bresku iðnaðarsamsteypunnar GKN plc. Söluverð (e. Enterprise value) er 706 milljónir evra. Það svarar til tæplega 105 milljarða króna. Samkvæmt vef Eyris átti félagið 17% hlut í Fokker.

Í tilkynningu kemur fram að Fokker er sérhæfður undirverktaki á sviði flugvélaframleiðslu. Fokker hannar, þróar og framleiðir íhluti, rafkerfi og lendingarbúnað fyrir marga af helstu flugvélaframleiðendum heims.

Hjá fyrirtækinu starfa nærri 5000 manns, höfuðstöðvar Fokker eru í Hollandi en félagið rekur verksmiðjur og starfsstöðvar í Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu. Velta Fokker árið 2014 nam 758 milljónum evra.

 „Það er ánægjulegt að ljúka vel heppnaðri sölu á Fokker á þessum tímapunkti“, segir Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri eigna hjá Eyrir Invest í fréttatilkynningu.

„Rekstur Fokker hefur gengið vel að undanförnu og framtíðarhorfur eru góðar. Stjórnendur og fjárfestar hafa aldrei misst sjónar á langtímamarkmiðum sínum fyrir félagið og þeim möguleikum sem í því fólust. Með sölu til GKN náum við okkar helstu markmiðum og við erum því afar sátt við árangurinn auk þess sem við teljum að salan nú sé mjög jákvæð fyrir félagið, hluthafa, starfsmenn og viðskiptavini.“

Áætlað er að salan á Fokker verði formlega að fullu frágengin eigi síðar en á fjórða ársfjórðungi að uppfylltum skilyrðum um upplýsingagjöf til hagsmunasamtaka starfsmanna og verkalýðsfélaga í Hollandi, og veittum heimildum frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu.

Kjölfestueignir Eyris eru 29% hlutur í Marel og 17% hlutur í London Acquisitionsem á og rekur iðnfyrirtækin Stork Technical Services og Fokker Technologies. Þá rekur Eyrir Invest sprotasjóðinn Eyrir Sprotar slhf. sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum og styður þau til vaxtar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK