Í júní tók sala á Crocks-skóm kipp eftir að myndir náðust af Georgi prins hlaupa um í dökkbláu pari. Á næstu klukkustundum eftir birtingu myndanna jókst sala á öllum helstu sölusíðum á netinu. „Við vorum hæstánægð með að sjá hann í skónum,“ hefur Forbes eftir Gregg Ribatt, forstjóra fyrirtækisins.
Í viðtali Forbes við Ribatt bendir blaðamaður á að hann hljóti að taka mjög vægt til orða, þar sem sala hefur dalað mikið á síðustu árum, eftir Crocks-sprengingu upp úr árinu 2000.
Þrátt fyrir skiptar skoðanir um fagurfræðilegt gildi skóna hafa flestir verið sammála um þægindin.
Vöxtur fyrirtækisins á síðasta áratug var gífurlegur. Árið 2003 námu sölutekjur Crocks um 1,2 milljónum dollara en voru orðnar um 850 milljónir dollara fjórum árum síðar. Á árinu 2013 námu sölutekjurnar 1,2 milljarði dollara og voru því ennþá hærri en hagnaðurinn dróst hins vegar saman um 92 prósent milli ára. Hlutabréf hafa fallið mikið í verði síðan og eru í dag um 84 prósent verðminni en þau voru árið 2007.
Í janúar 2014 var gripið í taumana og Blackstone hópurinn fjárfesti fyrir 200 milljónir dollara í fyrirtækinu og eignaðist þar með 13 prósent hlut. Blackstone skipti forstjóranum út og réði fyrrnefndan Gregg Ribatt, sem hafði áður gegnt ráðgjafastarfi fyrir hópinn.
Síðan Ribatt tók við hefur hann lokað fjölmörgum búðum, dregið úr framleiðslu og bætt dreifingu til heildsala. Þá sameinaði hann þrjár markaðsskrifstofur fyrirtækisins sem voru í sitthvorum heimshlutum.
Á næsta ári hyggst hann draga um fimmtíu prósent úr vöruúrvali sem hefur aukist mikið á liðnum árum til þess að styrkja reksturinn enn frekar og einbeita sér að grunnstoðum Crocks. Að selja plastinniskó.