Fermetraverð stóð í stað

mbl.is/Styrmir Kári

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í júní stóð í stað frá fyrri mánuði en síðastliðna þrjá mánuði þar á undan hafði hún hækkað um 0,8 prósent. Síðastliðna sex mánuði þar á undan hækkaði hún um fjögur prósent og á tólf mánuðunum þar á undan hækkaði hún um 10 prósent.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Hún stóð í 428,5 stigum í júní 2015.

Þjóðskrá Íslands greinir frá þessu. Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. 

Hún er fundin út með því að skipta íbúðarhúsnæði í flokka eftir stærð og gerð; þ.e. hvort það teljist fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK