Aflaverðmæti dregst saman

Verðmæti afla upp úr sjó nam 10 milljörðum króna í apríl, það er 8,8% minna en í apríl 2014. Verðmæti þorsks var mest eða um 3,8 milljarðar króna sem er 7,2% samdráttur miðað við apríl í fyrra.  Verðmæti kolmunna var 35,7% minna en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Á tólf mánaða tímabili frá maí 2014 til apríl 2015 jókst aflaverðmæti um 7% miðað við sama tímabil ári áður. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 26,3% milli tímabilanna, og munar þar mest um loðnu og kolmunna. Einnig jókst verðmæti þorsks um 14,1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK