90% hótelgesta útlendingar

Ljósmynd/Hótel Húsafell

Gistinætur á hótelum í júní voru 285.100 sem er 19% aukning miðað við júní 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 90% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 20% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um tæp 10%.

Flestar gistinætur á hótelum í júní voru á höfuðborgarsvæðinu eða 162.800 sem er 16% aukning miðað við júní 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 47.600. Erlendir gestir með flestar gistinætur í júní voru; Þjóðverjar með 56.500, Bandaríkjamenn með 54.600 og Bretar með 26.900 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili júlí 2014 til júní 2015 voru gistinætur á hótelum 2.508.841 sem er fjölgun um 15% miðað við sama tímabil ári fyrr, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

84,1% nýting herbergja á hótelum í júní 2015

Nýting herbergja var best á Suðurnesjum eða tæp 90%. Á höfuðborgarsvæðinu var ríflega 86% nýting á herbergjum. Nýting hótelherbergja var lægst á Norðurlandi eða um 75%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK