Landsbankinn frestar hönnunarsamkeppni

Ákveðið hefur verið að fresta hönnunarsamkeppni um fyrirhugaða nýbyggingu Landsbankans sem hefjast átti síðar í þessum mánuði. Það er meðal annars gert til fara yfir þau sjónarmið sem fram hafa komið á síðustu vikum. Nánar verður gerð grein fyrir framhaldinu opinberlega þegar frekari ákvarðanir liggja fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

Sjálfsagt að fara yfir sjónarmiðin

Hönnunarsamkeppnin átti að hefjast þann 17. ágúst nk. „Það hefur bara verið ákveðið að fresta samkeppninni og fara yfir það sem hefur komið fram í umræðunni. Það hefur ekkert annað verið ákveðið á þessu stigi,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans í samtali við mbl. „Það hafa margir tekið til máls og sett fram sín sjónarmið og það er bara sjálfsagt mál að fara yfir þau,“ segir hann.

Bankaráð tók ákvörðunina um að fresta samkeppninni að vel athuguðu máli segir Kristján.

Ekkert útilokað

Ekki hefur verið boðað til hluthafafundar um málið og aðspurður hvenær ákvörðunar eða frekari frétta af málinu sé að vænta segir Kristján að Landsbankinn muni gefa sér nauðsynlegan tíma. „Við þurfum bara að draga andann djúpt og skoða málið vel,“ segir hann.

„Það er aldrei neitt alveg útilokað,“ segir Kristján aðspurður hvort væntanleg staðsetning verði mögulega endurskoðuð. „En það liggur ekkert fyrir um það og þetta er bara það sem hefur verið ákveðið,“ segir Kristján. „Í ljósi umræðunnar töldum við rétt að staldra við og bíða með samkeppnina.

Gagnrýni úr öllum áttum

Líkt og fram hefur komið tók bankaráð Landsbankans ákvörðun um að ráðast í ný­bygg­ingu við Aust­ur­höfn í Reykja­vík. Kostnaður við bygg­inguna með lóðar­kaup­um er áætlaður um átta millj­arðar króna.

Fjölmargir hafa gagnrýnt áformin, þ.á.m. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sem hefur kallað áformin „ögrun“ og sagt það vera und­ar­legt ef banki sem er í al­manna­eigu, ætl­ar að fara gegn því sem virðist vera aug­ljós vilji eig­end­anna - al­menn­ings og full­trúa hans.

Þá lagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, til að sleggj­um yrði dreift til allra lands­manna til þess að brjóta nýbygginguna niður og festa húsbrotið á filmu sem listgjörning und­ir heit­inu: „Meira en nóg af þess­ari hel­vít­is vit­leysu.“

Vest­manna­eyja­bær, sem er hluthafi í bankanum, hefur jafnframt sent bréf til stjórn­ar­for­manns Lands­bank­ans þar sem kallað er eft­ir gögn­um sem tengj­ast fyr­ir­huguðum fram­kvæmd­um.

Afstöðumynd sem sýnir staðsetningu höfuðstöðvanna.
Afstöðumynd sem sýnir staðsetningu höfuðstöðvanna. Mynd/Landsbankinn
Vest­manna­eyja­bær kallaði eft­ir gögn­um sem tengj­ast fyr­ir­huguðum fram­kvæmd­um.
Vest­manna­eyja­bær kallaði eft­ir gögn­um sem tengj­ast fyr­ir­huguðum fram­kvæmd­um. Sigurður Bogi Sævarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK