Jómfrúin fær nýja eigendur

Jakob Jakobsson á Jómfrúnni
Jakob Jakobsson á Jómfrúnni mbl.is/Árni Sæberg

Jakob Jakobsson og Guðmundur Guðjónsson, stofnendur veitingahússins Jómfrúarinnar, hafa selt fyrirtækið ásamt fasteignum í Lækjargötu til Jakobs Einars Jakobssonar og Birgis Bieltvedt. Jakob Einar er sonur Jakobs, en allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1996 hefur Jakob eldri verið í forsvari fyrir það.

Jakob Einar segir að varlega verði ráðist í breytingar á veitingahúsinu og að viðskiptavinir muni ganga að því vísu sem þeir þekki þaðan.

„Við stefnum þó að því að gera ákveðnar breytingar. Meðal annars ætlum við að lengja afgreiðslutímann fram á kvöldið og ég veit að það er kærkomin breyting fyrir marga sem vilja gæða sér á smurbrauði eftir klukkan sex á daginn.“

Samhliða lengri afgreiðslutíma, sem Jakob segir ekki síst hugsaðan til að mæta fjölgun ferðamanna í miðborginni, stefna nýir eigendur að því að efla veisluþjónustu Jómfrúarinnar. Þannig verði stoðirnar undir fyrirtækinu treystar enn frekar.

Jakob verður framkvæmdastjóri en Birgir Bieltvedt verður stjórnarformaður. Sá síðarnefndi kaupir meirihluta í fyrirtækinu, en hann hefur á umliðnum árum fjárfest í veitingafyrirtækjum hér heima, í Noregi og Svíþjóð, þeirra á meðal Domino's Pizza, Joe & the Juice og Gló.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK