Samkomulagið jafngildi greiðsluþroti

mbl.is

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur lækkað lánshæfismat sitt vegna Úkraínu með þeim rökum að samkomulag ríkisstjórnar landsins við hluta af kröfuhöfum þess jafngildi greiðsluþroti.

Fram kemur í frétt AFP að einkunn Úkraínu vegna langtímaskuldbinga hafi verið lækkuð úr CC í C í kjölfar þess að tilkynnt var um samkomulagið í gær en samkvæmt því þurfa kröfuhafar að gefa mikið eftir af kröfum sínum eða sem nemur 20%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK