128 milljóna halli hjá Kópavogsbæ

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. Kristinn Ingvarsson

Halli á rekstri Kópavogsbæjar á fyrri hluta ársins nam 128 milljónum króna og var umfram áætlanir. Gert hafði verið ráð fyrir 117 milljón króna halla á tímabilinu. Skýringin er einkum lægri skatttekjur en áætlað hafði verið að því er fram kemur í tilkynningu.

Þá segir að reksturinn á fyrri hluta árs komi vanalega verr út en á seinni hluta vegna þess að á fyrri hluta árs falla aðeins um 48 til 49 prósent af skatttekjum ársins en stærri hluti útgjalda á ákveðnum sviðum. 

Árshlutareikningur Kópavogs fyrir 1. janúar til 30. júní 2015 var lagður var fram í bæjarráði í dag.

Óttast bakreikninga

„Miðað við árferði þá erum við nokkuð sátt. Launaáætlun gengur eftir í stórum dráttum og þá höfum við nú rétt eins og undanfarin ár lagt áherslu á aðhald í rekstri. Hins vegar þá óttast ég bakreikninga vegna nýrra kjarasamninga, breytinga á starfsmati og endurreiknaðra lífeyrisskuldbindinga sem munu hafa áhrif á niðurstöðu ársreiknings Kópavogsbæjar,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, í tilkynningu.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 1.895 milljónir króna. Þetta þýðir að framlegðarhlutfall samstæðu var um 16,3% en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu 15-20%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK