Fundur Landsvirkjunar í beinni

Stórum framkvæmdum fylgir óhjákvæmilega rask og geta sjónræn áhrif orðið …
Stórum framkvæmdum fylgir óhjákvæmilega rask og geta sjónræn áhrif orðið umtalsverð. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Lands­virkj­un í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta býður til op­ins fund­ar á Hilton Reykjavík í dag und­ir yf­ir­skrift­inni „Hvernig mótar orkuvinnsla umhverfið“. Fund­ur­inn er sýndur í beinni út­send­ingu á mbl.is.

Útsend­ing­in hefst um kl 13:30 og stend­ur til 16:30. Á fundinum verður fjallað um hvernig skapa megi jafnvægi milli landslags, landmótunar og orkunýtingar þar sem stórum framkvæmdum fylgir óhjákvæmilega rask og geta sjónræn áhrif orðið umtalsverð.

Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. 

Gavin Lister, verður með framsögu á fundinum. Hann er einn fremsti landslagsarkitekt Nýja Sjálands og stofnandi landslagsarkitektastofunnar Isthmus. Hann situr í umhverfisskipulagsráði Aukland borgar og hefur komið að ráðgjöf, þróun og hönnun á almenningssvæðum, innviðum og skipulagi borga.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

Stefán Pálsson, sagnfræðingur, „Áhrif mannsins á landslag“.

Rut Kristinsdóttir, sviðsstjóri umhverfismats Skipulagsstofnunar, og Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur, „Eru virkjanamannvirki afturkræf“.

Helena Guttormsdóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands, og Áslaug Traustadóttir, landslagsarkitekt, FíLA, Landmótun, „Sjónræn áhrif við aðlögun framkvæmda að landslagi – hvað þýðir það?“.

Gavin Lister, landslagsarkitekt og stofnandi Isthmus, „Hönnun á orkuvinnslusvæðum“.

Í kjölfar framsögu Gavin Lister verða pallborðsumræður þar sem rætt verður frekar um áhrif orkuvinnslu á umhverfið.

Í lok fundar munu Björk Guðmundsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA, Landsvirkjun,
og Hermann Georg Gunnlaugsson, formaður Félags íslenskra landslagsarkitekta draga saman helstu niðurstöður fundarins.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="390" src="https://www.youtube.com/embed/JCKAq0Bhu1E" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK