Kauphöllinn áminnir og sektar Virðingu

Viðurlaganefnd Nasdaq Iceland hefur komist að þeirri niðurstöðu að áminna beri Rekstrarfélag Virðingar opinberlega auk þess sem félagið þarf að greiða tvö févíti samtals að upphæð 2,5 milljónir króna. Félagið veitti ófullnægjandi upplýsingar í lýsingu skuldabréfa sem tekin voru til viðskipta 10. júlí á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Hinn 10. júlí 2014 voru skuldabréf, útgefin af Virðingu, tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar á grundvelli lýsingar sem staðfest var 30. júní 2014. 

Dagsetning fjárhagsupplýsinga í lýsingu miðaðist við 31. desember 2013 þar sem heildareignir sjóðsins voru sagðar nema um 11.290 milljónum króna. 

Þess var hvergi berum orðum getið í lýsingu að eftir dagsetningu fjárhagsupplýsinga hefðu hlutdeildarskírteinishöfum verið greiddar út 500 milljónir króna hinn 22. janúar 2014 og 482 milljónir króna hinn 4. júní 2014. Samanlagt var um að ræða u.þ.b. níu prósent af heildareignum sjóðsins miðað við fjárhagsupplýsingar í lýsingu.

Það var fyrst 22. ágúst 2014, þegar árshlutauppgjör fyrir fyrri helming ársins 2014 var birt opinberlega, að fram komu upplýsingar um að hrein eign sjóðsins hefði verið neikvæð um 25,5 milljónir króna vegna útborgunar til hlutdeildarskírteinishafa. Þann dag ákvað Kauphöllin að athugunarmerkja bréfin.

Viðurlaganefnd Kauphallarinnar komst að þeirri niðurstöðu að Rekstrarfélagi Virðingar beri að greiða 1,5 milljón króna févíti vegna brota á ákvæðum 4.1.2 og 4.2.1 í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga, en reglunum er m.a. ætlað að tryggja að fjárfestar hafi á hverjum tíma aðgang að nýjustu upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að geta myndað sér skoðun á fjárfestingarkostum sem í boði eru.

Þá var Virðingu gert að greiða 1 milljón króna fyrir brot á ákvæðum 3.3.1 og 3.1.4 í reglunum sem m.a. eiga að tryggja að raunsæ mynd sé gefin af rekstrinum

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK