„Ný blöð munu líta dagsins ljós“

Sex blaðanna sem Fótspor ehf gaf áður út.
Sex blaðanna sem Fótspor ehf gaf áður út. Skjáskot af fotspor.is

Enn er beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupum Vefpressunnar á út­gáfu­rétt­in­um á 12 blöðum sem Fót­spor ehf gaf áður út, meðal ann­ars Reykja­vík Viku­blaði og Ak­ur­eyri Viku­blaði.  Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi og stjórnarformaður Vefpressunnar, segir að þegar leyfið fáist verði ekki dregið úr útgáfunni heldur bætt í.

Björn Ingi segir líklegt að ekki sé langt í að leyfi fáist en að þangað til sé bara hægt að bíða.

„Þetta er ferli sem lögin segja til um, við megum ekkert gera fyrr en græna ljósið er fengið. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það gerist á næstunni,“ segir Björn Ingi.

„Það er frekar augljóst í þessu tilviki að hvorugur aðilinn er með markaðsráðandi stöðu. Útfrá þeim rökum sýnist mér þetta býsna einfalt en ég ætla líka bara að leyfa embættismönnunum að vinna sína vinnu.“

Björn Ingi segir að þegar leyfi samkeppniseftirlitsins liggi fyrir verði aftur hafin útgáfa á blöðunum. „Það verður ekkert dregið úr heldur bara bætt í,“ segir Björn. „Ný blöð munu líta dagsins ljós.“

Fréttir mbl.is um málið:

„Ekki séns í helvíti Björn Ingi Hrafnsson“

Segist ekki vita hvað taki við

Bíða samþykkis Samkeppniseftirlitsins

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK