EasyJet stundvísast

Photo: easyJet
Photo: easyJet

Breska flugfélagið EasyJet var það stundvísasta á Keflavíkurflugvelli í ágúst. Það á bæði við um komur og brottfarir flugvéla. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Dohop ferðavefnum.

Alls voru 86% brottfara EasyJet frá Keflavík á réttum tíma og 89% komufluga. Meðaltöf við brottfarir hjá easyjet var 6,78 mínútur og við komur 5,63 mínútur.

Airberlin var með lægstu meðaltöfina þennan mánuðinn við bæði brottfarir og komur. Þennan mánuðinn var WOWair óstundvísast með 78% hlutfall á réttum tíma við brottfarir og 71% við komur, segir ennfremur í tilkynningu frá Dohop sem byggir tölur sínar á upplýsingum frá Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK